Var í litafræði í fornámi í fyrra í Myndlistaskólanum í Rvík. Kennararnir vildu að við værum bara með bláan,rauðan og gulan og svo hvítan og svartan til að blanda algengustu litina og það var alveg nóg. En núna í vatnslitun sem er að byrja í Myndlistaskólanum á Akureyri, þá vill kennarinn að við eigum fullt af litum í stærri kassa (ég var nýbúin að kaupa lítinn kassa með nógu mikið af grunnlitunum!!!!) ég sagði honum það og hann vill ekki leyfa mér að telja það nóg!!!! Ég er búin að týna kvittuninni fyrir litla vatnslitakassanum sem ég er nýbúin að kaupa og er ekki ánægð…fleiri eru ekki ánægðir!!!!!