Ég hef átt virka blogger síðu í þónokkurn tíma. Fyrst var allt í góðu en svo kom þetta alltaf svona hjá mér síðasta sumar. Þetta var ekkert smá böggandi! Ég á þessa síðu með vinkonu minni hérna á Íslandi og svo erlendum vin sem býr í suður ameríku. Hann gat alltaf bloggað án erfiðleika en ekki ég og vinkona mín. Þetta var farið að vera frekar þreytandi en lagaðist svo bara af sjálfu sér. Mér finnst líklegt að þetta sé bara eitthvað í íslenska netinu. Ég var samt farin að skrifa blogg í word og vera svo bara geðveikt snögg að paste-a inn á bloggið og ýta og publish og þá kom það oft. Prufaðu það.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..