Málið er að í dag vantar þetta element þar sem “enginn veit neitt”. Menn eru búnir að grafa svo sjúklega langt niður í leikinn og allar upplýsingar orðnar svo aðgengilegar að maður fylgir bara ákveðinni formúlu, rotation. Það vita allir allt um alla, en hey, það er balanced jibbí :DDD
World PVP þarf ekki að vera balanced. Og það er ekki fínt núna. Ef maður hleypur um í PVP gear á quest svæði, jújú maður á alveg séns á að finna fólk, en fólkið gæti alveg eins verið target dummy í þessum PVE gear, á ekki séns í að drepa þig, sem er í raun ekkert gaman. Gætir alveg eins gert rotationið þitt á NPC.
Langbesti tíminn voru þessar nokkrar vikur eftir að honor systemið kom og áður en BG's komu. Eftir að BG's komu fór World PVP dvíííinandi (einfaldlega færra fólk úti) og er núna orðið að sama og engu þegar maður þarf ekki einu sinni að fara útúr borginni til að gera dungeon.