Get líka gert mér mjög flókinn leik með steinum útí garði þar sem hver steinn stendur fyrir svona þrjátíu mismunandi leiðir og aðgerðir sem gætu gerst, pólitík og sjóræningjaskip og fengið 10 vini mína til að spila leikinn, en það þýðir EKKI að hann sé geðveikt góður út af því að við leggjum geðveikan metnað í að verða góðir í honum og læra á hann ..
Það sem ég hef heyrt frá fólki sem er ekki die-hard Darkfall aðdáendur um leikinn er að hann á LANGT í land með að vera eitthvað sem mætti kalla ágætt .. bendi bara á ekki eina, heldur TVÆR nýlegar umsagnir um leikinn á EUROgamer síðunni (getur gúglað darkfall reviews og það poppar upp) .. ekki að segja að það sé ekki gaman að spila leikinn, en það er ekki fyrir alla og ef leikurinn er ekki fyrir alla getur hann varla talist betri en leikur sem er fyrir alla og MJÖG maRGIR fíla í ræmur. (ætla að vera bitch og spila lýðræðisspilinu - við búum við lýðræði, fleirum finnst WoW betri og þ.a.l. er það niðurstaðan)