Tjah ef við viljum bara rétt líta yfir Pólland þá var her þeirra undir 300 þúsund manns og fjöldi látinna frá Póllandi yfir 5 milljónir þar af voru um 3 milljónir sagðir vera pólskir gyðingar.
Þegar verið er að tala um fjöldagrafir og þessar tölur koma upp þá sérðu í snatri hve lítill hluti þeirra fallna miðað við heildarfjölda voru hermenn. En eins og ég sagði og segi enn og aftur þá var langstærsti hluti fórnarlambanna óbreyttir borgarar (skiptust í þá hópa sem ég nefndi áður og þá aðallega voru þeir gyðingar).
Þú sagðir “það voru ekki bara gyðingar”, ég svaraði með því að játa það enda vita allir að það voru ekki BARA gyðingar drepnir en svo sagði ég að stærsti hluti af því fólki sem voru skotmörk Hitlers voru gyðingar. Enn og aftur þá hef ég rétt fyrir mér enda er það sannleikurinn.
Til að mynda er frægasta tilvik um notkun fjöldagrafa það þegar fyrsta stig í áætlun Hitlers þar sem Sovétríkin komu við sögu var sett af stað þegar hann sendi inn dauðsveitirnar sínar sem voru ekki fleiri en 3 þúsund manns. Þeirra eini tilgangur var að fara þangað inn og finna gyðinga,kommúnista,andstæðinga og fleiri og drepa þá. Það var gert með því að smala saman þessa hópa svo skella þeim öllum í fjöldagröf. Sagt er að yfir milljón gyðingar létust bara í þessum aðgerðum og þetta er ein helsta ástæða fyrir því að gyðingum yrði misboðið af því að einhver pjatti væri að gantast með svona grín þegar afar,ömmur stundum heilu fjölskyldurnar voru drepnar með þessum hætti.
Ég býst samt engan veginn við því að gyðingur af þýskum/pólskum/rússneskum uppruna sé e-ð að fletta í gegnum Blizz á huga en það er ekki kjarni málsins, kjarninn er bara að sýna öðru fólki því virðingu sem það á skilið þó maður þekki það ekki neitt.