Ég var rosalega spenntur yfir þessum leik og var heldur fúll yfir því að það var hætt við hann. Blizzard leigðu heilt teiknistúdíó í Rússlandi til að gera hann, en allt kom fyrir ekki, þeir hættu við hann þegar örfáir mánuðir voru eftir af framleiðslunni. Þið getið lesið
þessa grein sem fer með ykkur um gerð leiksins og það sem varð honum að falli. Það áttu víst að vera eitthvað af rosalega súrum atriðum í honum og hann átti að vera uppfullur af húmor. Til að mynda er til skjáskot af Deathwing að reykja vatnspípu…