Ég skildi þetta ekki sem nett grín, ég skildi þetta eins og hvert annað classist comment.
Þegar ég sagðist vera feral druid og vera að raid'a spurðir þú (UBRS?) eins og ég væri lélegur brandari eða eitthvað. Þannig skildi ég það, og ég móðgaðist..
Mér er svona nett sama um gear, honor og hvaða boss'a fólk er búið að down'a.. Fólk sem heldur að það geti unnið sér inn virðingu hjá fólki með því að senda inn mynd af sér í fullu Tier 2 og fara svo að gera lítið af öðrum ágætum spilurum útaf því að þeir eru ekki jafn epixaðir og það, það er versta tegund af hálfvitum og það er það síðasta sem ég myndi persónulega gera.
Ég hef mína skoðun og birti hana eins og mér sýnist, svo lengi sem hún er ekki algjörlega óþörf nema til þess að særa og niðurlægja annað fólk.
Ef þú meintir þetta sem létt grín hef ég greinilega misskilið þig, og biðst afsökurnar á því. Ef þú ert hinsvegar einn af þessum þröngsýnu hálfvitum sem gerir lítið úr ákvörðunum fólks eins og t.d. hvaða talent build það kýs þá stend ég við það sem ég sagði áður.