Um 10.000 árum áður en orcs réðust inn í Azeroth vaknaði í Kalimdor kynþáttur álfa, Night Elves, og þar með lauk allsherjar yfirráðaskeiði dreka sem að höfðu ráðið heiminum þar til nú. Night Elves byrjuðu að fikta við frumstæða galdra og lokkuðu óvart Burning Legion, djöfla frá hinum ýmsu heimum, inn í Azeroth. Með hjálp drekanna og Demon Soul, galdrahlutar þeirra (sjá bókina Day of the Dragon fyrir betri upplýsingar hvað varðar þann hlut) náðu þeir að hrekja þá út úr Azeroth, þar sem þeir hafa dvalið þar til að WarCraft III: Reign of Chaos hefst, þar sem að þeir ráðast aftur inn í heiminn enn á ný. Síðast þegar þeir réðust inn í Azeroth sökk stór hluti Kalimdor undir vatn, og hver veit nema svipuð eyðilegging verði í þessu stríði…<br><br>Villi