Sko ég hef núna verið að reyna migrata einn af mínum chars í nokkrurn tíma og einmitt fengið þetta up “The requested file was not found! Sorry!
404 File Not Found!”
eða ef ég kemst í gegnum það fengið “Payment rejected” og ekkert gerist.
Eftir að hafa talað við bankan minn og svo Visa þá komst ég að því að þetta væri ekkert með kortið að gera og þetta væri sennilega eitthvað Blizzard meginn.
Svo ég ákvað með mína miklu ensku kunnáttu að hringja bara í support line sem er í síma 0044 800 931 0800 og eftir þó nokkra bið heyrði ég undurfagra og blíða rödd á hinum endanum “Welcome to Blizzard customer support line, How can I help you” sagði fagra röddin með nettum enskum hreim…. Mér varð svo við að ég aulaði útur mér “já hérna, I gotten little problem with mígrating, I fínish all stuff and get problem when I púshja final button to try pay… I talk with my bank and visa and they dont see anything, can you help me pliz??” og viti menn eftir miklar og heitar umræður þá fékk ég loks lausn minna mála og er nú loksins kominn á nýjan server. Svo ánægður var ég að ég skrapp út og fékk mér pylsu til að halda upp á þetta.
Jæja vonandi var í lagi að deila þessu :D