Ég er með málverk uppá vegg, eftir einhvern listamann sem ég veit ekkert hvað heitir, mynd af bát og einhverjum öldum, allt í lagi listaverk en þannig séð ekkert spes.
Hinsvegar minnist önnur hver manneskja sem labbar hingað inn á hvað þetta sé flott málverk.
Þetta sverð er ekki flott, þetta er ekki sniðugt eða sætt, þetta sverð er fokking brútal og ekkert plast dót heldur alvöru ryðfrítt stál.
Myndi miklu frekar kjósa að hafa það uppá vegg hjá mér en eithvað heimskulegt málverk af skútu.
Hinsvegar er ég frekar öruggur með minn eigin nördaskap og hef kennt fólki í kringum mig að bera virðingu fyrir því að ég sé tjúllaður nördi.