Það er hægt að breyta þessu. Hisnvegar er bannað að breyta þessu þannig að aðrir spilarar sjái svona hluti. Ég gæti líka trúað því að það sé bannað að breyta litlum hlutum eins og t.d. quest items sem þú tekur upp í eitthvað stórt sem sést úr mikilli fjarlægð.
Svona átti ég til dæmis svartan dreka á shamaninum mínum mörgum mánuðum áður en TBC kom. Ég breytti loading screens, orcar urðu night elves eða gnomes og svo framvegis, allt farið í tætlur.
Svo er t.d. hægt að breyta druid bear form í panda form í staðinn og svo framvegis. Möguleikarnir eru endalausir, þú getur t.d. breytt útliti húsa. Sama gildir um armor, sem lvl20 mage með Crescent Staff sprangaði ég um með High Warlord's Greatstaff (ef það er rétt nafn) áður en TBC kom út. Starting background screenið mitt var orðið allt annað en dark portal, minnir að ég hafi notað human. Lagið sem á að vera var farið og komið almennilegt metal lag í staðinn.
Núna er hinsvegar búið að nerfa þetta og orðið pínulítið flóknara að breyta um textures og models. Það er samt hægt.