Já góðan daginn.

Þetta byrjaði fyrir 2 mánuðum síðan. Þá allt í einu byrjaði wow að crasha og crasha.

Ég reyndi að repaira leikinn en það virkaði ekki. Ég sá svo að driverarnir á tölvunni minni voru úreltir. Þannig ég sótti nýja en ennþá virkir WOW ekki.

Svo ég gjörsamlega hætti bara að spila WOW. En núna fyrir nokkrum dögum langaði mér að byrja aftur ;D. Svo ég reyndi mitt besta til að finna lausnina. Ég henti öllum Temporari files WTF og WTB og það bætti leikinn. En ég er ennþá að crasha. Ég get ekki farið á populated staði nema að horfa niður á kallinn.

Mér langaði bara að spyrja hvort einhver hérna hafi fengið þetta error og hvernig hann leysti það. Þetta er að gera mig brjálaðann.