Neh. Þitt point var að þeir sem gera grín að Nihilum eiga sér minna líf.
Og Joana hefur þurft að spila leikinn dáááálítið mikið til að geta gert guidinn. En ég verð að viðurkenna það að ég var óttalega lengi upp á 60 og einhvern tíma upp á 70 líka. En það var bara að því að ég spilaði þegar mig langaði að spila, var ekki að hugsa ‘omg verð að spila allavega 5 tíma í dag svo ég geti náð 60!!’. Bara tók þetta rólega, skemmti mér konunglega að spila með bróður mínum og var ekkert að hafa áhyggjur af powerleveling.
Kannski hef ég þá spilað miklu meira heldur en aðrir (/played er reyndar 35 dagar, en ok) því ég var svona lengi, en hey, það var allavega alltaf gaman. Get ekki ímyndað mér að það sé mikið fjör að powerlevela eða eyða næstum öllum frítíma sínum til þess að njóta þess ‘heiðurs’ að vera fyrst með einhverja bossa.