Ekki hef ég nú hitt þig, þannig að ég get eiginlega ekki sagt mikið um það, en dæmandi af því hvernig þú ert á huga held ég bara að þú sért alveg fínn gaur.
Bara hnakka hérna í Odense fara svo roooooosalega í taugarnar á mér, þeir eru allir í sömu bolunum (mismunandi litum auðvitað), þeir eru alltaf 3 saman, þeir eru með sama, ljóta svarta og gula hárið með virkilega ýktar greiðslur, þeir eiga alveg eins skó, alveg eins buxur, alveg eins peysur og úlpur og svona má lengi telja. Þeir hlusta allir á Akon/Snoop Dogg og blasta lögunum þeirra í strætó, og svo finnst mér allt þetta sem þeir ganga í alveg hrikalega ljótt.
Ég gæti líklegast haldið klukkutíma fyrirlestur um hatur mitt á þeim, en auðvitað eru margir af þeim góðir gæjar, ég bara hata attitudeið í þeim og hvernig þeir líta allir alveg eins út.
Þekki alveg einn-tvo hnakka sem eru fínir gaurar, en þó legg ég það ekki í vana minn að reyna að kynnast svona gaurum, þó svo að það geti skeð.
Soldið langt svar, en gaurarnir hérna fara alveg virkilega í taugarnar á mér.