Ekkert net í 11 daga
Fékk tölvupóst frá RHnet sem sagði að það væri að fara að laga Cantat sæstrenginn og það mun taka 11 daga…ekkert net í 11 daga á íslandi…ffs
Þessi viðgerð mun að öllum líkindum hafa einhver áhrif á notendur Hive. Fullu sambandi verður haldið við útlönd á meðan um FARICE strenginn. Það má þó búast við því að þetta hafi áhrif á hraða eða svartíma.
Vodafone notar tvær leiðir fyrir síma- og netþjónustu til útlanda; CANTAT-3 og FARICE sæstrenginn. Á meðan unnið er að bilun í CANTAT-3 sæstrengnum verður öll þjónusta (sími og net) viðskiptavina til útlanda flutt um FARICE. Viðskipavinir geta því búast við hægari netumferð í einhverjum tilvikum. Einhver röskun getur einnig orðið á heimasímaþjónustu til og frá Ameríku.