Þetta er náttúrulega skandall. Af hverju í andskotanum að hafa þetta þarna ef þeir ætla að banna fólk sem fer þangað! Ég skil vel af hverju þessi staður er til, en af hverju að hafa þetta ekki bara alveg lokað fyrir fólki ef þeir vilja ekki að fólk fari þangað?? Það á ekki að vera erfitt að loka á aðgang almennra spilara.
Svo hefur þetta engin áhrif á leikinn fyrir aðra spilara.. hvernig væri að þeir drulluðust til að einbeita sér að stoppa gullsölu og laga glitcha í staðinn fyrir að níðast á forvitnum spilurum.
Hef svo sem ekki lesið licence agreement statementið sem kemur í hvert skipti sem nýr patch kemur, en finst ólíklegt að það sé minnst á þetta þar. Ég myndi gjörsamlega eipa ef ég yrði bannaður fyrir eitthvað svona.
-