Jæja ég er nú stjórnandi hérna, menn hafa eitthvað verið að kvarta yfir því því þeir segja að ég sé ekki að gera það sem ég sagði, það er nú bara þannig að þið notendurnir takið ekki eftir mér fara yfir korkana, hafna/neita myndum (nema sá sem sendi þær inn) og annað slíkt.

Einnig sambandi við það að fá nýjan stjórnanda í stað seemans…

Það er nefnilega svo fyndið að um leið og stjórnandi hættir þá fara allir alltíeinu að segja “GOD ÞETTA áhugamál vantar stjórnanda…(MIIIIG)”…menn eru að há einskonar kosningabaráttu sem er náttúrulega algjör djókur

Ég hef séð fólk sem hefur alveg leynda þrá í stjórnendastöðuna haga sér þannig að það væri ekki nokkur séns að heilvita maður gæfi þeim hana, t.d er einn notandi sem að núna drullar yfir mig og segir að ég sucki, honum líki ekki við mig og vitið þið kæru notendur útaf hverju? Því ég samþykkti ekki mynd frá honum!! Hversu fáránlegt er það? Einhvernvegin held ég að sá drengur sé ekki stjórnendaefni.

Einnig hafa menn eins og Gísli30 verið nefndir til sögunnar, en hann virðist vera mjöööög umdeildur, síðan eru það margir fleiri og svo virðist sem að það sé ekki hægt að koma sér saman um einhvern einn.

Annars, það þarf ekki meira en tvo stjórnendur til þess að stjórna þessu áhugamáli, þú getur haft mig á orðinu. Fjöldi stjórnenda hefur ekkert að gera með aðsókn áhugamálsins

Hér er ég að vitna í Vilhelm, einn allra besta stjórnanda huga að margra mati, ég veit nú ekki hvort ég er búinn að vera stjórnandi jafn lengi og hann en ég er allaveganna ekkert langt frá því og ég get alveg sagt ykkur að ég er alveg sammála, 2 stjórnendur eru alveg nóg, við samþykkjum nokkrar myndir á smá fresti til að halda flæðinu jöfnu og að hver mynd fái smá tíma fyrir sig, en ég hef séð það hjá notendum í kosningabaráttunni fyrir stjórnendastöðuna að þeir segja “ég mun samþykkja myndirnar og kannanirnar miklu hraðar”, það er alveg nóg til að útiloka þann notenda strax, því að kannanirnar eru með meira en 50 daga bið, og myndirnar þurfa allar að fá sinn tíma hver, því annars njóta þær sín ekki.

Ég er enn svolítið ragur við það að samþykkja Wow greinar, því ég er ekki 100% á því en þar kemur á móti að Gspeed er alveg inni þar…í öðrum leikjum frá blizzard er ég meira en vel inni :)

Við stjórnendurnir komum hér inná daglega, ég nenni nú ekki alltaf að logga mig inn en ég hef lesið hvern einasta kork sem hingað kemur inn, ég eiði reglulega og svona. En mér þótti svolítið fyndið að sjá hjá notendum svör um það að korkum væri ekki eitt sem þeir vildu láta eiða, hvað þarf oft að segja þetta? Sendið okkur PM annars hafiði ansi lítið að kvarta yfir :)

Og já ég setti þetta inná WOW almennar umræður því hér hafa þessar umræður farið fram og ég hef ekki eitt þeim þó þær komi wow ekki beint við.

Takk fyrir mig, Wanganna, ósýnilegi stjórnandinn sem virkar eins og “Firewall” á þursa.