Jæja, þá er kominn myndbandakorkur fyrir þá sem vilja deila myndböndum með öðrum. Það eru nokkrir hlutir sem ég vil biðja ykkur um að fara eftir í tengslum við hann.

1) Ef þið hafið mörg myndbönd til þess að ræða um, setjið tengla á þau í einn þráð, EKKI búa til marga þræði fyrir mörg myndbönd.
2) Ekki senda fleiri en einn þráð á dag. Ef það er eitthvað myndband sem þið viljið rosalega deila með öðrum en þið eruð þegar búin að senda inn þráð þann daginn, sendið myndbandið inn sem svar á eldri þræði eða bíðið með það þangað til daginn eftir. Myndbandið hleypur ekki á brott milli myrkra.

Fleira var það ekki.