Ég held alveg örugglega að ekki megi miðla upplýsingum um No-CD Crack hér á Huga, enda er um brot á EULA að ræða.
Það er hins vegar til mjög góð aðferð til að keyra leikinn beint af harða disknum. Nærð þér bara í CloneCD og tekur klón af geisladisknum inná harða diskinn (CloneCD rippar diskinn 100% eins og hann er, annað en flest önnur forrit sem rippa .iso file'a af diskum). Því næst sækiru þér Daemon Tools og keyrir .iso file'inn með því (Daemon Tools býr til virtual cd drive í kerfinu hjá þér sem gerir þér kleyft að keyra .iso file'a eins og þú værir með disk í geisladrifi). Ég held að þessi aðferð brjóti ekki EULA, þar sem Daemon Tools er í raun ekki 3rd party program (allavega fyrir leiknum).
Þessa aðferð er ég búinn að nota í einhver ár án vandræða og er mjög ánægður.