Svona fyrst við erum komnir á þessa braut þá langar mig að auglýsa eftir UZI byssu og sokkabuxum með götum (fyrir augun).
Veit fólk ekki að það er að auglýsa eftir að fá að stela leiknum með þessu (og það opinberlega). Cd-Key er ekkert annað en leyfi til að fá að spila leikinn.
Þegar þú kaupir tölvuleik þá ertu að fyrst og fremst að kaupa lykilinn, ekki diskinn. Og að þar af leiðandi máttu allveg fá diskinn skrifaðan ef þinn skemmist, svo lengi sem þú átt lykilinn.
Reyndar senda flestir hugbúnaðar framleiðendur þér nýjann cd ef þinn skemmist, þú þarft yfirleitt bara að borga eitthvað pínulítið fyrir sendingar kostnaðinn og diskinn sjálfan.