Með UD mage og orc warlock á level 60. Þetta er smekks atriði hvort þú fílar að spila:
Mage
Fyrir mig verður hann of einhæfur á lvl 60, hann getur samt verið með djöfull öflugt DPS burst sem hann getur dumpað á hvaða target sem er og tekið það út (fyrir utan warlock demon master með felhunter), hef fengið 2300 crit hit með pyro (án þess að vera með fire power) og 1700 crit hit með frostbolt.
Hann hefur mjög gott survivability gegn flestum klössum og getur nánast alltaf flúið með dóti eins og pom+sheep, frost nova+blink (nema druids).
Hann á aðalega í vandræðum með druids, priests, warlocks og caster-shamans, samt getur hann tekið þá alla út ef þú spilar hann rétt (nema dmon master warlock með felhunter…).
Það sem fékk mig til að fá nóg af honum var það að allir high end items úr MC og öðrum stöðum eru með fire resist og til að drepa Ragnaros þarftu að vera með ranged frostbolt (þú deyrð of oft og ert useless DPS ef þú ferð í arcane missile range við rag, nema ef að raidið þitt er komið með það mikið DPS að hann deyr áður en nokkur son of flame kemur inn), svo ég þurfti að breyta mér í frost mage til að halda mér í línu við umhverfið mitt.
Warlock
Hann getur verið mjög flókið klass að spila og verður flóknari með levels þar sem þú færð nýja galdra, fer mjög eftir því hvernig þú speccar hann hvernig hann er. Eins og margir vita þá getur hann verið með betra DPS og hærri crits en mage, og með heppni (night fall) getur hann dumpað meira DPS burst á target.
Hann er þekktur að vera í veseni með meele klassa og að geta rústað caster klassa. En það fer allt eftir því hvernig þú speccar hann. Þú getur balancerað þig út til að vera mitt á milli og verið með möguleika í alla klassa og haldið frábæru DPS, að mínu mati og fyrir mig er hann kóngur í 1on1 gegn öllum ef þú speccar hann rétt.
Það vonda við hann er að þú þarft ávallt að vera með poka pláss fyrir shards, sem fer ekki vel með sumum professions (eins og mínum; cooking, mining, engineering), þarft að vera með fullt af tökkum sem hafa allir not við einhverjar aðstæður, og getur oft ekki bjargað félaga þínum í combat eins og mage getur oftar gert (counter-spell, frost nova, sheep).