Ég hef nú bara reynslu af þeim úr Warsong Gulch, og paladins ásamt warriors og stundum rogues eru þeir classar sem ég á yfirleitt auðveldast með að drepa þar. Auðvitað hefur það einhver áhrif að ég, sem firemage, geri tiltölulega mikinn non-physical skaða tiltölulega hratt, og get því tekið þessa classa sem byggjast á armour auðveldar en sumir aðrir classar, sem gera mest physical skaða.
Á hinn bóginn á ég í erfiðleikum með hunters og warlocks, og maður heyrir allstaðar þar sem class balance er rætt að þeir tveir séu underpowered classar. Svo þetta er einhvers konar steinn-skæri-blað, líklega eins og það á að vera.
Peace through love, understanding and superior firepower.