Well, pandarens eru sniðugt race. Þeir koma frá Pandariu og kalla þeir ríki sitt Pandaren Empire og fara þeir fæstir frá því. Það veit heldur enginn hvar Pandaria er eða hvort hún er kominn inní WoW, en ef hún er komin þá er ótrúlega erfitt að finna hana. Sem það á að vera, því þetta er líklega leyndardómsfyllsta samfélagið í Warcraft sögunni.
En einhverjir pandarens fara nú frá Pandariu. En einungis til þess að finna fleira hráefni í bruggið sitt. Þeir eru, sjáðu til, sjúkir í öl. Þeir eru ekki mikið fyrir slagsmál eða stríð og myndu flokkast undir algjörlega hlutlaust race. En ef einhver böggar þá, kemst sá og hinn sami að því að þeir eru ekkert til að leika sér við. Einhverskonar drunken masters of elemental power, ef svo má að orði komast.
Frægasti pandarininn er að öllum líkindum Chen Stormstout, sem margir kannast við úr Barrens questinu “Chen's Empty Keg”. Hann var eitthvað að hjálpa Rexxar eftir fall Burning Legion, en enginn veit hvar hann er núna. Hann skildi þó nokkrar bruggflöskur eftir í Barrens.
Og þetta er nokkurn veginn allt sem við vitum um pandarens. Einn besti listamaður Blizzards, Samwise, skapaði þessa race að mestu leyti.