Veistu, ástæðan fyrir þessum posti var sú að ég ætlaði að setja inn grein um Epic hunter questið og mína persónulegu reynslu af því en ég einfaldlega hef engan áhuga á því lengur út af svona þroskaheftur vitleysingum eins og ykkur kumpánunum.
Ég setti þennan kork hérna því ég vildi flexa vöðvana og sýna að ég væri bestur og mestur af öllum þeim sem að þennan leik spila, ég póstaði þessu til þess að reyna að efla mitt egið sjálfsálit og láta alla aðra íslendinga finna fyrir öfund og láta ykkur alla langa til að vera ég!
Það hefur örugglega ekkert með það að gera að mér datt í hug að hey, kanski hefur einhver áhuga á að vita að einhverjir íslendingar hafa klárað það erfiðasta sem nokkur hunter getur gert í leiknum, þessi korkur hafði pottþétt ekkert með það að gera að mig langaði að deila með ykkur þeirri ánægju sem fylgir því að fá loksins verðlaun fyrir margra vikna vinnu og einfalt vesen.
Nei, nei. Þetta var pottþétt eithvað svona, “haha, nú munu allir tilbiðja mig sem guð” dæmi, ekki neitt svona “Hey vá, til hamingju með þetta kallinn minn, vel gert”.
Eg held einfaldlega að þú ættir að láta það vera að reyna að vera fyndinn eða sniðugur í framtíðinni því það einfaldlega á ekkert við þig, Vinur þinn hérna fyrir ofan sagði sína skoðun, ég sagði að mér væri drullu sama um hans skoðun, ef þið getið ekki sætt ykkur við það að ykkar álit sé ekki það sem ákvarði hvort dagurinn minn sé góður eða ekki þá ættuð þið einfaldlega að undirbúa ykkur fyrir mikil vonbrigði í lífinu.