sko, hunters hætta að geta survivað betur þegar þeir byrja í BRD… mail gerir ekki neitt, ég er með 2500 armor á meðan rogues og jafnvel priests eru með um 1500, petið drepst á svona 2-3 höggum frá mobs og AoE og pullar endalausa adds (jafnvel þótt maður passi sig þá eltir það runners og pullar) svo það er oftast bara dismissað. feign death er fínt en ef það eru 5+ mobs þá resistar það eiginlega alltaf. rogue hefur vanish, feint og evasion, mage cone of cold, frost nova og blink, hunter disengage (sama og feint, minnkar aggro) og feign death.
og svo þegar þú ert kominn í MC/BWL þá ertu dauður áður en mobinn kemur uppað þér ef þú færð aggro. við höfum bara 1 buff sem er ultimate talent og nær bara 30 yds, sem er ekki næstum því nóg því við erum oftast um 40 yds frá mobinum en melee classarnir í melee, og casters græða ekkert á attack power. við höfum ekkert sem getur talist CC, engan mat eða neitt til að gefa group. og já við gerum auðvitað miklu minna damage en mage og rogue, mage hefur ekki bara meira damage en við heldur svo miklu betra AoE. og rogues gera svo sjúkt damage á 1 target að það eru oftast 5-10 rogues efstir í damage í MC. og þetta með að mage verði out of mana… þeir hafa svona 7k mana með buffs og evocate og potions, ég get ekki ímyndað mér að þeir þurfi meira en 15k mana eða eitthvað í hverju fight (á móti bosses í MC eru þeir oftast bara að decursa).