Góðan dag, Draupnir talar… [LVL 54 Warrior, Thunderhorn Realm]
Hérna, ég var að spá..
ég er nýbúinn að starta Priest, og ég er bara í algjörri kássu með hvernig prestur þetta á að vera… Ég er level 16 núna og er í augnablikinu með 5 talent points í Holy og 2 talent points í discipline…. En ég veit ekki hvort ég á að vera Discipline, Holy, eða Shadow…
Einhver sagði mér að Shadow priests suckuðu big time, en ég hef heyrt um einn sem beitti nær eingöngu shadow og var f****n rosa öflugur…
Discipline finnst mér vera meira Solo talents, því þeir gera meira fyrir mig sjálfan heldur en “groupið” sem ég er í… Þó bætir það t.d. Power word: Fortitude, þannig kannski er ég bara í tómri steypu hérna…
Að lokum er það Holy: Þetta finnst mér vera einungis til að bæta healing og þar með gott fyrir priest sem reynir alltaf að redda group í allt…
Æ ég er bara í öngum mínum, getur einhver upplýst mig um presta frekar? Allir vera óhræddir við að leiðrétta mig