Voru þeir ekki búnir að laga Soul Link ennþá? Jæja, það eru líka bara 2 klassar (held ég) sem að geta dispellað Soul Link og ég get ekki ímyndað mér að þeir ætli sér ekki að laga þetta í næsta patch.
ah, ekki gleyma soulshards, maður getur ekki alltaf verið með bunch af soulshards á sér, það er hreint bug, ég þarf alltaf að fara til plaguelands að farma, svo er ég sterkur þarna í þessar 20 min sem að shardin endast(meina þá með soulfire, healthstone, soulstone, hugsanlega spellstone og pet). Og svo aftur til plaguelands. PvP á þeim slóðum þar sem 50+ mobs finnast eru af mjög skornum skammti….
Þetta verður ekki vandamál eftir að þeir leyfa manni að Soul Draina aðra spilara. Það verður kannski svoldið erfitt að gera það en þeir færu varla að gera það mögulegt í PVP ef að það væri ómögulegt að koma því að eða ef þú tapaðir einhverju miklu á því að gera það.
lvl 60 gaur er alls ekki lengi að gefa frá ser 2000 dmg, alls ekki. Svo ég tali nu ekki um mana kostnað við hvert summon…..
Já, við missum þá 3000 (eitthvað í kringum það) minna líf útaf þessum 2 skjöldum. Það er nú bara ótrúlega gott.
Mana kostnaðurinn er kannski frekar mikill en það er ekki það stór fórn til að bjarga sér. Svo jafngildir líf mana hjá okkur og við getum fengið 1.2 mana á hvert líf og þessi skjöldur sparar okkur sirka 1600 líf (1920 mana)…
50% minna dmg? meinar þá link við petið? ah en ekki get ég sacrificeað petinu og verið linkaður við það, einnig þá er hægt að dispellea soul link
og það eru 0.6 sek summon timinn minnir mig, aldrei verið demonology speccaður af þvi að það er drasl tree.
Auðvitað geturðu það ekki, enda sagði ég það ekki. Þú getur Sacrificað Voidwalkernum hvenær sem er, t.d. þangað til að annarhvor er að fara að deyja og notað svo bandage, fengið annan á 0.5 sek (ekki séns fyrir nokkurn mann að ná að trufla það) og Soul Linkað aftur.
Enslave er ekki allt sem við getum gert, ég viðurkenni alveg að það er hörmulegt. Samt, að hafa einhvern svona rosalega öflugan náunga við hliðina á sér getur algjörlega snúið bardaganum á þinn veg. Er ekki einnig hægt að nota Banish á þá þegar þeir sleppa? Ég veit það samt ekki.
En eins og ég sagði, ég veit að við erum með mikið af böggum en ekki lélegir.