Ég fór í Stromgarde að questa um daginn, og mér fannst alveg stórkostlegt hvað það var mikið af alliance pakki sem tróð sér inn til að ganka, en var svo bara drepið (aðallega af grúppunni minni, samt). Ég held við höfum drepið sömu gaurana svona 5 sinnum áður en við yfirgáfum pleisið. Reyndar, þá drápum við aðra gaura (þar af level 48 mage sem við hökkuðum í spað) á leiðinni þangað, nokkrum sinnum.
Mér finnst alveg ótrúlega gaman að því þegar fólk eyðir tímanum í að deyja svo ég og félagar mínir getum skemmt okkur betur og verið frekar ánægðir með kvöldverkið. :)