ok nú ætla ég að segja þér smá sögu… ég var troll hunter í horde, og svo einn daginn langaði mig að raida, svo ég safnaði 40 manns og fór inní ashenvale, eftir svona klukkutíma vorum við búnir að safnast saman inní ashenvale og lagðir af stað (við vorum reyndar ekki það high lvl að við gætum snert guards því þetta var frekar snemma en við ætluðum bara að drepa players fyrir utan r sum, þeir söfnuðu oftast hópi á móti raid groups). svo komum við að astranaar og nokkrir mjög gáfaðir svona lvl 15 gaurar hlupu beint yfir brúna og ætluðu að drepa allt, en þeim til mikillar undrunar voru guards yfir lvl 10 (eða í lvl 40) þannig að þeir ákváðu að hlaupa til okkar og láta þá drepa allan hópinn, en við vorum með nokkra lvl 30+ gaura sem náðu á endanum að drepa verðina. svo héldum við áfram, og allan tímann voru auðvitað rifrildi, sumir aðeins á eftir og allir að rífast um hvað við ættum að gera, og það hlustaði gjörsamlega ENGINN á það sem ég sagði (ég var raid leaderinn). svo ná þeir í guards aftur svona 1-2 sinnum og voða gaman að drepa þá og svona (sérstaklega þegar ENGINN vildi reza þá sem dóu).
svo hélt þetta svona áfram í smá tíma þangað til að alliance komu með einhverja 20-30 gaura í darkshore og rústuðu okkur með því að hafa 1 priest sem hljóp undan helmingnum af hópnum okkar og drepa restina á meðan, við auðvitað öskruðum og öskruðum á þá að DRULLA sér til baka því það væri raid group fyrir aftan okkur að drepa okkur en neeeiiii þeir URÐU að drepa priestinn þannig að þeir drápu þennan helming sem var eftir og svo hinn helminginn sem var dreifður um þarna einhversstaðar. þetta gerðist svona 2-3x þangað til að allir fóru nema nokkrir af okkur sem fórum til teldrassil og svona =P og fórum svo heim.
soldið löng saga =P en hún afsannar þessa fáránlegu kenningu ykkar um að horde séu miklu skipulagðari í PvP.
já og svo fór ég í annað raid á astranaar um daginn og þegar við vorum komnir langt inní bæinn og þetta gekk bara nokkuð vel ákveður raid leaderinn að fara til baka til splintertree því það var verið að raida það þannig að helmingurinn af hópnum var owned í splintertree af svona 40 high lvl gaurum en hinn helmingurinn var owned í astranaar af guards og svona 20 alliance gaurum. svo ákváðu þeir að fara til teldrassil með raid groupinn og þá fór ég úr honum =P
ég hef reyndar bara raidað einu sinni sem alliance en það var miklu miklu betra en þetta, fyrir utan það að þetta getur ekki orðið verra en þetta var í FB hjá horde.