Illidan er ekki dauður, hann særðist alvarlega, og Arthas skildi hann eftir, svo komu Nagarnir og Blood elvarnir og björguðu Illidan, hann er eins og er sterkasti NPC'inn í WoW.
Særður? hann særðist ekkert, hann drapst. hann er kannski ekkert endanlega dauður en hann kemur tæplega aftur neitt bráðum.
Quel'Thalas er í eyði, það er rétt, en alls ekki horfið eins og þú leggur til, Silvermoon (höfuðborgin í Quel'thalas) er til dæmis næstum því alveg heil, göturnar eru kyrrar og draugur látinna álfa ráfa um þann stað.
ég kom nú bara með þessa uppástungu um Quel'Thalas því að einhver sagði að það væri ekki í leiknum, sem er greinilega rugl þá :S
Ég veit nákvæmlega hvar Mount Hyjal á að vera á kortinu, og treystu mér, það er ekki á því.
Hins vegar, er mjög líklegt að World Tree'ið sem þú hefur séð er Teldrassil, sem er nýtt World Tree sem Nátt álfarnir sköpuðu til þess að varðveita ódauðleika sinn.
nei ég er ekki að tala um Teldrassil þegar ég segi mount hyjal, mig minnir endilega að ég hafi séð það á kortinu, en það hefur bara verið eitthvað annað kort þá =/
Það er rétt hjá þér, Arthas er orðinn “uber demigod”, það heitir reyndar Eternal, og aðeins máttugustu verur í heiminum geta orðið það (dæmi um Eternala eru Cenarius og Ashara, drottning Nagana).
síðast þegar ég vissi var Cenarius nú dauður, ég veit ekki hvort hann á að vera lifandi í einhverjum öðrum heimi eða eitthvað en Grom Hellscream drap hann allavega.
en svo væri náttúrulega alger snilld að Azshara væri þá leaderinn hjá blood elves ef þeir kæmu inní leikinn seinna, væri gaman að sjá hana.
annars eru þetta kannski ekki alveg máttugustu verur í heiminum, ég efast um að neinn af þeim gæti snert Sargeras til dæmis =P hann myndi varla láta einhvern orc drepa sig, þau eru kannski frekar orðin eins og archimonde, mannoroth og kil'jaeden (og ég veit að archimonde og mannoroth eru dauðir).
The Scourge er flóð af heilalausum Zombie'um sem fara algjörlega eftir vilja Arthas'ar, þannig að það væri hæpið að hafa það playable race…
það er bara eitthvað rugl í NPC's í Undead noobzones, allavega sýndist mér Kel'Thuzad ekki beint vera neinn “mindless zombie”. og hvernig hefði Sylvanas átt að geta svikið Arthas ef hún hefði bara verið “mindless zombie”.
það eru kannski svona mindless zombies sem Arthas notar sem “footmen” en það eru allavega ekki allir meðlimir The Scourge bara mindless undead, svo það væri vel hægt að hafa það playable race.