ég held að þú ættir að skoða nafnið á leiknum aðeins betur áður en þú ásakar blizzard um að stela öllu sem er í honum, en hann heitir því ágæta nafni, World of Warcraft. ef þú veist hvaða leikir Warcraft 1, 2 og 3 eru þá fattarðu væntanlega að þessi leikur á að vera um warcraft heiminn og þar af leiðandi allt umhverfið mjög líkt warcraft, en hann er önnur tegund af leik (MMORPG í stað RTS) þannig að hann er ekki mjög líkur hinum warcraft leikjunum í spilun.
og ef þú ert að ásaka blizzard um að stela race-um úr warhammer, er þá ekki Tolkien að gera það líka með LOTR, eða eru warhammer að stela frá LOTR kannski? (veit ekki hvort kom fyrst)
og að segja að blizzard geri alltaf alveg eins leiki er hreint fáránlegt vegna þess að það er fátt líkt með starcraft, diablo og warcraft leikjunum annað en að þeir eru allir hrein snilld. auðvitað er world of warcraft partur af warcraft seríunni þannig að auðvitað er hann líkur hinum warcraft leikjunum, þú gætir alveg eins ásakað blizzard um að vera að stela úr warcraft 1 og 2 í warcraft 3. og auk þess, eins og einhverjir sögðu, er það sem er gamalt og er gert betra oftast skemmtilegra en það sem er nýtt, því það eru fleiri gallar í þessu nýja, eve er gott dæmi um þetta en allavega hef ég aldrei séð neinn leik sem er líkur honum, ég spilaði hann í um 3 mánuði en hætti síðan því það var hreinlega ekkert hægt að gera í honum, nema kannski PvP, og maður var alltaf svo lengi að ferðast útum allt og svo hræddur um að verða drepinn á leiðinni.
og þetta með eineltið, eins og margir eru búnir að reyna að segja þér eru það oftast þeir sem rífa mest kjaft og eru að reyna að vera “kúl” sem leggja aðra í einelti sem eru oft þroskaðari eða gáfaðari en þeir og fá kannski hærra en hinir á prófum eða eitthvað slíkt.
mér er nákvæmlega sama hvort þér finnst world of warcraft vera ömurlegur og bara rænt frá öðrum leikjum, og missir þessvegna af einum besta MMORPG allra tíma. mátt bara fara og spila eve eða hvað sem þér finnst nógu “frumlegt”.
ok þetta var soldið lengra en ég hafði ætlað mér, ef þetta væri um eitthvað sérstakt annað en korkinn þinn gæti ég örugglega sent þetta inn sem grein =P
ef þú ætlar að segja eitthvað eins og “þú ert heimskur, wow suckar, þú ert örugglega sveittur nördi sem hangir í tölvunni allan daginn og er lagður í einelti” þá máttu alveg sleppa því. farðu frekar og legðu fólk í einelti með þínum “kúl” vinum.