BlAH!!!
Ég þoli ekki Maphack og annað cheat (víst er MH cheat). Það ætti að henda öllum acct sem nota MH.
Það er ekkert gaman af því að sjá allt kortið og alla kalla. Maður gæti alveg eins séð þá hvaða hluti hvert monster droppar, þá getur maður sleppt því að drepa öll monster, nema þau sem droppa einhverju girnilegu. Og af hverju ekki að hætta bara að drepa monster yfirleitt??!?
Þeir sem nota MH segja: “MH er ekki cheat. Það sparar manni bara tíma, t.d. í að leita að WP, caves, útgönguleiðum o.þ.h.”
Af hverju ekki bara að hætta að drepa kalla, nota bara forrit sem gefur manni exp (það fer svo mikill tími í að fá exp)?
Af hverju ekki bara að nota forrit sem gefur manni bestu hlutina (það fer svo langur tími í að leita að bestu hlutunum)?
Af hverju ekki bara að geta búið til einn lvl99 kall með öllu bestu itemunum á sér?
Af hverju ekki bara að fá forrit að spila Diablo2 fyrir mig (það fer svo mikill tími í að spila D2)?
Af hverju bara ekki að fá forrit til að lifa fyrir mig (það fer svo mikill tími í að lifa)? - Nei, kannski gekk ég of langt þarna…… en þið skiljið hvert ég er að fara.

Ekkert af þessu er illa meint, svo ef þið eruð sár, keep it to yourself.

kveðja
jericho