Jæja…
Er búinn að vera að spila WarCraft3 núna síðan ég keypti hann á föstudaginn og líkar mjög vel enn sem stendur.
Það var bara eitt atvik, frekar skemmtilegt atvik sem mér fannst ég verða að segja frá.
Það er smávegis spoiler fyrir Chapter 5 í Human Campaign. (Minnir að það sé Chapter 5)
***Spoiler***
Já, í kaflanum þar sem þú þarft að lifa af í 30 mínútur…kannski lentu fleiri í þessu, ég veit það ekki, en mér fannst þetta bara svo mikil snilld að ég varð að segja frá þessu.
Anyway, í þessum kafla þurfti maður eins og þið vitið að lifa í 30 mínútur þar til Uther kæmi. Jæja, ég gerði ein frekar stór mistök svona til að byrja með, tók þessu allt of rólega. Svo þegar maður þurfti að fara að stöðva kornvagnana tók ég Arthas og einhverja 8 menn með honum. Fyrir einhverja algjöra hundaheppni lifði ég nú samt af þrátt fyrir að óvinaherinn með vagnana var frekar miklu stærri en minn. Arthas var sá eini sem lifði, lvl 5, með um 70hp eftir.
Fór með hann heim til hvíldar og hvað gerist? Kemur ekki áras frá Undead gaurunum rétt þegar Arthas er kominn og þeir drápu hann.
Sem betur fer átti ég nóg af pening til að endurlífga Arthas en það tók sinn tíma.
Á meðan náðu Undead gaurarnir inn fyrir virkið og og fór að lemja á Barracksinn minn. Náði að búa til tvo Footmen til að tefja þá og það gekk.
Arthas lifnaði við og fór beint að berjast, þar til árásinni var lokið.
En ekki leið á löngu þar til önnur eins árás kom, og ég ekki enn búinn að undirbúa mig fyrir átök. Á þessum tíma voru 3 mínútur eftir. Árásin tók allt nema Arthas. og átti ég svo fáa vinnumenn til að grafa gull að ég átti erfitt með að fá hermenn.
Svo kom næsta árás og drap hún Arthas þar sem hann átti ekki mikið líf eftir.
Nú voru eftir 2 og hálf mínúta, og ég átti ekkert nema tvo vinnukalla sem unnu hart við að grafa gull fyrir mig. En það dugði ekki þar sem ég náði ekki 160gold áður en Barracksinn var rústaður.
Ég ákvað að bíða í staðinn fyrir að hætta, því leikurinn er ekki búinn fyrr en það kemur annaðhvort Victory eða Defeat.
Svo var allt farið nema Keep, um 7 Farm og 2 Guard Towers. Um 1 mínúta og tuttugu sek eftir. Þeir drepa vinnumennina mína og fara svo á Keepið, og tíminn tifaði.
Keepið sprakk, og þeir byrja á einum Farm, en þar sem Guard Tower byrjar að skjóta á þá, fara þeir þangað, sem gaf mér í raun tíma. Undead gaurarnir rústa báðum turnunum og fara svo aftur á Farmana.
Ég á varla von um að lifa af, og þá bætast við tvær næstum jafnstórar Undead árásir og allt að lemja á öll Farmin. 20 sekúndur eftir, enginn her, bara þessi Farm. 10 sekúndur eftir og ég á 3 Farm eftir. Spennan í hámarki, eitt Farmið springur…og annað. Ég á eitt Farm eftir og horfi á lífmeter þess lækka á þónokkrum hraða þegar tíminn fer í 0.
Ótrúlegt en þá kom sýningin þar sem Uther og menn hans sópa Undead gaurunum í burtu.
Og allt í einu stendur Arthas þarna sprellifandi eins og hann á að gera í sýningunni…og upp kemur glugginn:
Victory!
Ég vann borðið..en ef maður horfir á það frá annarri hlið þá hefði ég átt að tapa big time. :) En ekki kvarta ég.
Ef einhver nennti að lesa þetta allt…þá þakka ég fyrir. Langaði bara til að skrifa eitthvað…
cheers,
gerbill