Rétt hjá þér þegar maður veit svindlin þá er nánast ómögulegt að spila á þess að nota þau, maður nennir kannski ekki að safna fyrir þessum 12 Battlecrúserum og svindlar þá bara og þegar maður er kominn á lagið þá er það það fyrsta sem maður gerir þegar maður byrjar nýtt borð að svindla (Fá peninga eða taka út þokuna eða eitthvað annað) þetta er ekki bara lame heldur eyðileggur þetta allan leikinn.
Þegar ég var að glíma við Monkey Island 3 og var búinn að vera fastur heillengi á einum stað svo á endanum ákvað ég að fara á netið og sjá hvort það væri ekki einhvernskonar walkthrought, bara til þess að komast framhjá þessu smáatriði en þegar síðan var fundinn þá leiddist maður til að fara strax aftur á netið þegar næsta vandamál kom upp
þá nennti maður ekki að pæla og leikurinn var ónýtur.(Ég kláraði Star craft án svindls seinna).