Blizzard tilkynnti í dag að aukapakkinn fyrir Diablo II, Lord of Destruction, sé farinn af stað í pressurnar. Í aukapakkanum eru tvær auka persónur til þess að spila, hver með 30 skilla til þess að hjálpa sér í bardögum við vætti Sanctuary. Í pakkanum verður auk þess heill nýr kafli sem gerist í norðri, en þangað hefur Baal flúið og hefur einsetið sér að ná valdi yfir Heimssteininum, en tilgangur hans er að halda öllu illu frá Sanctuary (ef ég hef túlkað þetta rétt).

Leikurinn kemur út 29. júní úti um allan heim, þannig að ef það verður ekki miðnætursala þá mæli ég með því að fólk vakni snemma á föstudaginn í næstu viku :)

willie