[D2] 1st drop hugtakið og magicfing (mf) Mér þykir gaman þegar ég læri eitthvað nýtt að deila því með ykkur. Margir ykkar vita þetta nú þegar og byrja oftar en ekki að monta sig af því hér (sjá fyrri greinar). En látum þessa vitleysinga ekki skemma ánægjuna fyrir okkur hinum og nú munuð þið læra alveg nýja aðferð til að magicfinda (mf-a).

Þegar characterinn ykkar klárar meph questið (eða e-n annan endaforingja), mun þetta 1.10 1st drop eiga sér stað. Það þýðir að þið fáið mun betra dropchance. Einfaldlega, svo lengi sem characterinn ykkar á eftir að klára meph questið, fær hann alltaf 1st drop frá honum. Þannig getið þið drepið hann í lokuðum/opnum leik og fengið 1st drop ÁN þess að klára questið. Þetta er hægt að endurtaka svo lengi sem þú klárar EKKI questið.
Ég er búinn að stunda meph-run í langan tíma núna og þegar ég lærði á þetta 1st drop, hafa hlutirnir breyst mikið. Shako, Stormshield, occy o.fl. hafa droppað á örfáum klst. Dæmi eru um að fólk sé að fá þessi (ásamt fleirum) godly items á undir 30 skiptum.
Þetta virkar á Andy, D, Baal líka svo nú er ekkert annað að gera en að búa til MF-chars og byrja á meph-hlaupum ;)

Fyrir ykkur sem eiga 2 tölvur (eða eruð með 2 LOD í gangi í einu), mæli ég með að þið gerið eftirfarandi:
1. Búið til barb og maxið BO og synergies
2. Rushið þessum barb upp á hell meph og klárið questið. Einnig er hægt að klára hell Baal líka ef þið viljið 1st droppa hann líka
3. Gerið sorc með eins mikið mf-gear og þið getið. Gott að gera blizz sorc eða meteor sorc. Ekki gleyma að nota secondary weapons (ýta á “W” til að skipta um vopn) og skipta á milli. Annars vegar er gott að nota hluti sem gefa faster cast rate eða +skills til að vera fljótur að teleporta og drepa meph. Rétt áður en meph deyr, þá skiptið þið yfir í hitt vopnasettið, þar sem þið notið eins mikið +magic find hluti og þið getið (ég mæli með uq daggernum GULL og “Rhyme” runeword sem gefur +25% mf).
4. rushið þessari sorc þar til þið komið á durance of hate lvl2 (finnið wp)
5. Búið nú til leik með barb og joinið með sorc.
6. sorcin fær þau skilaboð að hún getur ekki klárað questið - því barbinn er búinn að klára það
ATH!! hér kemur það mikilvægasta
7. 1ST DROP VIRKAR NEFNINLEGA, JAFNVEL ÞÓTT EINHVER ANNAR HEFUR KLÁRAÐ QUESTIÐ. Þannig má gera þetta endalaust…
8. Notið barbinn til að gefa sorc BO á durance wp
9. teleportið ykkur að meph og klárið hann með sorc
10. Búið til nýan leik með barb og joinið með sorc.

Ódýrir hlutir fyrir sorc sem gott er að byrja með:

Helms:
- Tarnhelm uq skull cap gefur 25-50% mf og socketed með perf topaz getur gefið 74% mf
- 3 socketed hjálmur með 3 perf topaz gefur 72% mf (mjög ódýr)

Armor:
- Skin of the vipermagi uq serpantskin armor gefur fast cast rate og +1 skills, svo með socket perf topaz 24% mf
- Skullders Ire uq russet armor gefur gott mf og +1 skills (frekar dýr)
- 4 socketed armor með 4 perf topaz gefur max 96% mf

Shield:
- Rhyme runeword (shael eth) 25% mf
- Splendor runeword (Eth Lum) er dýrari en með 20% mf ásamt faster cast rate og +1 skills

Gloves:
- Chance guards uq chain gloves gefa 40% mf

Belt:
- Goldwrap uq heavy belt 30% mf (hægt að uppfæra í exceptional með Cube - þá fást 16 potion pláss í stað 12)
- Tal Rashas fine spun cloth 10-15% mf, en secondary mods frá öðrum hlut í setti getur verið gott

Boots:
- Magic/rare með allt að 50% mf

Rings:
- nagelring hefur gott mf
- rare hringir sem gefa faster cast rate, mf, resist

Ammy:
- rare sem gefur faster cast rate, mf, resist

Weapon:
- Gull uq dagger 100% mf / Spectral Shard blade faster cast rate, resist o.fl (nota “W” til að skipta á milli)
- rare sorc orb með resist og + skills
- einnig hægt að nota stafi, en þá taparu skildinum.

Þegar þið eruð orðnir ríkir, þá má fara að skipta hlutum fyrir Gheed's fortune uq charm (sem er frekar dýr) og % mf small charms.

ég get lofað ykkur því að þið verðið moldrík(ir) á þessu á örfáum dögum!!! Svo er það bara að tradea þessu fyrir rúnir og fara að ná sér í enigma og annað góðgæti ;)

heimildir:
- http://forums.rpgforums.net/showthread.php?t=228872
- http://www.battle.net/forums/thread.aspx?fn=d2-gameplay &t=92120&p=1#post92120

happy mfing,
jericho