Ég hef verið að kíkja hérna við og við undanfarna daga, fylgst með þróun mála og vonast til þess að ‘kollibetri’ biðjist afsökunnar á fremur ókurteisislegri framkomu sinni, en ekkert gerðist. Núna verð ég bara að blanda mér inn í þetta.
Ég vil þakka ykkur hinum fyrir stuðning ykkar…
Kolli, hlakkar þig til þess að verða sjö ára? Þú ert að rífa kjaft eins og þér sé borgað fyrir það, eintóm leiðindi og bjánalegar athugasemdir.
Þegar fólk öðlast hæfni á einhverju sviði, getur það gerst að viðkomandi verður hrokafullur, líti niður á þá sem eru lakari en hann á tilteknu sviði, en guð minn almáttugur þú hefur engan grunn fyrir þínum hroka. Þú byrjaðir á samanburði accounta, svo ég vil ljúka honum.
Win % MÍN er 64.19% (274-154) eins og er, og er megnið af þessum leikjum fengið með 1v1 þar sem stattar mínir eru 199-136. Ég er lvl 16 solo.
Win % ÞÍN er 76.87% (349-105) þegar ég skrifa þetta, en er langmeiri hluti þessara leikja fenginn með AT(aranged teams) við hina ýmsu spilara og eru 2 spilarar sem þú hefur spilað 16 leiki með(í 3v3), en með hinum hefurðu spilað 1-2 leiki. Fyrir utan AT leiki eru stattar þínir samtals 52-18.
Þetta sýnir okkur að þú virðist ekki vera neitt sérstaklega góður, þú ert ekki ranked í neinu nema 3v3, sem afar fáir spila. Þar ertu með 15-1 en samt ranked ~600 sem segir nú bara hve auðvelt það er að komast langt þar. Ég get líka farið hlaupandi milli rása, beðið um AT leik við alla þá sem ég hitti og látið gott heita eftir einn leik. Þú hefur marga wins, en wins við hverja? við byrjendur. Þú gætir sagt að góðir gaurar geta verið að spila saman í fyrsta skipti og þ.a.l. verið á lágu lvl, en það gerir ekkert nema að útskýra þá leiki sem þú hefur tapað í at.
“accountinn minn er : Eg013r4iN og þetta er fyrsti tft accountinn minn..”
myrkvi er líka fyrsti tft accountinn minn
“og lol þessir ”drake“ eru með noobish stats … kanski ranked high put shittie stats”
Kannski ranked high? rank/level segir mun meira en stats. Þetta er heldur ekki einungis fyrsti accinn minn, heldur sá eini sem ég spila á, þannig að þegar ég er að prufa ný ströt o.s.fr. þá nota ég minn aðalaccount, sem gæti útskýrt eitthver þessara tapa. Tak þú 335 leiki í 1v1 og sjáum þá til hvernig stattarnir þínir verða. Ég hélt ekki…
Ég skora á þig í 1v1, þú velur tíma, spilað verður á Europe og þegar ég vinn þig vil ég vinsamlegast biðja þig um að steinhalda kjafti eftir að hafa beðið hugamenn opinberlega afsökunar. Ef það skyldi gerast að ég myndi tapa fyrir þér, og þú finnur til óhóflegrar þarfar til þess að monta þig og hæðast að mér, vil ég biðja þig um að gera það í private chat við mig, í stað þess að trufla önnur málefni með innantómum orðum þínum
Takk fyrir
Drake | myrkvi