ég skil þig ekki alveg, ég sagði aldrei að Subaru Legacy væri ekki minn tebolli, finnst þetta mjög fínir bílar og nýjasta útgáfan lítur bara mjög vel út, einn af flottustu og eflaust bestu bílunum í sínum flokki… en að halda því fram að Subaru Legacy sé betri en Maybach af því að Maybach er “fyrir fólk með alltof stórar fætur”, eða Reventón af því að “hann er fyrir dverga”, eða CCXR af því að hann er “danskur andskoti” (sem hann er btw ekki, hann er sænskur)… það skil ég ekki.
Maybachinn til dæmis er í senn MUN þægilegri, MUN kraftmeiri, með MUN meira rými fyrir bæði farangur og farþega… og að mínu mati MUN fallegri. ég get svosem skilið að þér finnist legacy fallegri, en Maybach 62 S er bara betri bíll á allan hátt. Sem er ástæðan fyrir því að hann er muuuuuuun dýrari.
auðvitað færðu meira fyrir peninginn ef þú kaupir legacy… en ef þú fengir að velja einn af þessum ókeypis myndirðu virkilega velja legacyinn?