hann er gamall. Sem dæmi voru sumir gamlir mustang ekki nema um 150 hestöfl. Þetta er ekki spurning um hestaflatölu, heldur hversu mörg kúlstig þú ert með á þessu. Kúlstig(e. Coolpoints) eru gefin frá 1 uppí 100 eftir því hversu kúl bíllinn er. Einnig eru einstaka bílar með mínuskúlstig fyrir að vera anti-kúl. Og svo getur bíll skorað bónusstig sem kallast töffstig eftir því hversu töff hann er. Sem dæmi er gamall Dodge Charger með um 60-80 kúlstig en einnig með 20 töffstig ef hann er á semi-slikkum og svartur. Töffstigin eru gefin vegna þess að þér langar ábyggilega ekki að mæta þannig bíl í myrkri.
Kúlstig eru huglæg að einhverju leiti en flestir geta verið sammála um margt, eins og t.d. er Daiwoo Matiz með 90 mínuskúlstig og Aston Martin DB9 er með 75 kúlstig og 50 töffstig ef hann er með öllu James Bond dótinu í bílnum.