Hehe, ég trúi að við erum búnir að tala um samband stærðar véla og hestafla áður, en ég held að Ford hafi ekki haft rally í huga þegar þeir bjuggu til Mustang (vísa í Lincoln myndina sem var hérna fyrir stuttu).
Ég er meira fyrir F-body en Mustang, en það gerir Mustang samt ekki að lélegum bíl að mínu mati. F-body voru undir 100 hestöfl meira en Mustang og í 90's og upp úr, og þá var þróun þeirra nokkurn vegin samhliða, með Mustang aðeins á eftir F-body.
220 hestafla Mustang er hins vegar 220 hestafla bíll og hegðar sér eins og þannig, en í öðru svari sagðirðu “Frekar kraftlaus miðað við vélarstærð og þessi 220hp eru ekkert að skila sér.” og ef þú ert ekki að bera hann saman við sambærilegann bíl (220 hp) þá skil ég ekki hvað þú meinar.
-“What's the first thing you feel when you shoot a civilian? -Recoil”