Það sem ég átti við var að þrátt fyrir þessi 450 hestöfl þá gera þau ekki mikið miðað við aðra 450 hestafla bíla vegna þess hversu þungur bíllinn er. Miðað við að sá sem sendi inn myndina hélt líklega að þessi 450 hestöfl gerðu þennan bíl hraðskreiðan, ég var bara að leiðrétta þann misskilning.
Það er annað mál með jeppana því þrátt fyrir að þeir séu 2,5 tonn þá eru gírarnir svo lágt tjúnaðir að þeir komast heldur úr sporunum í staðinn fyrir að t.d. vél úr fólksbíl með sama hestaflafjölda væri látin í þannig jeppa.