Vá hvað ég er sammála, ég hef aldrei skilið þessa heimsku að vera með holræsakerfi undir bíl! Svo ekki sé minnst á hve víðáttu ljótt það er!
..og þegar fólk talar um flott hljóð, þetta er ekkert nema eitthvað anskotans frethljóð sem kemur úr þessu. Þetta er athyglissýkinn uppmáluð! Mér finnst töff þegar maður sér einhvern benz eða eitthvað sem lætur ekki mikið yfir sér, en hverfur síðan þegar honum er gefið inn, án þess að rífa eyrun af manni. V8 og annað muscle er allt annar handleggur.