Þessi bíll er Audi V8 Quattro og var notaður af H. J. Stuck í SMS liðinu í DTM kappakstrinum 1992 minnir mig. Uuumm, minnir að H. Haupt hafi verið á alveg eins bíl í sama liði. Þessi bíll var ekki notaður í rallýkeppni eins og einhverjir sögðu þarna áðan heldur var hann fyrsti bíllinn til að nota fjórhjóladrif í Rallýkross keppni, eða með öðrum orðum, keppni sem fer fram á svipuðum brautum og Formúla 1 keppnir eru haldnar á. Keppinautar þessa bíls í DTM kappakstrinum voru t.d. BMW M3 og Mercedes Benz 190E Evolution II. Ég gæti líka verið alveg úti að skíta…