Já, það er mikið af Imprezum á landinu..
Enda eru til nokkuð margar týpur af Imprezum, alveg eins og það er til margar týpur af.. Corolla.. Gl/GX/RS[reyndar bara 2]/GT/WRX/STI allt eru þetta mismunandi bílar.
Civic er það sama.
Ástæðan fyrir því að þetta eru vinsælir bílar er sú að þetta eru ódýrir bílar miðað við hvað þú ert að fá. STI er 4,9 sec 0-100, sem er nú nokkuð gott finnst þér ekki? Þeir eru gefnir upp 13sec uppá mílu STOCK, og með pústi og síu náði einn 12,4.
Honda Civic er lítill, eyðslugrannur bíll með litla 1600cc rellu sem skilar 160hp og fer míluna á 14.9 sec.
Einnig ódýrir bílar sem virka mjög vel miðað við vélarstærð.. Tekur marga af þessum benzum til dæmis sem fólk slefar yfir hérna inná og flengir þá uppá mílu og uppá braut.
Það er ástæða fyrir því að þessir bílar eru vinsælir.
Prófaðu að keyra einn svona og segðu mér svo hvað þér finnst.