hér er ný Shelby GT500KR,
Ford frumsýndi sérútgáfur þriggja gerða á bílasýningunni í New York nýlega. Meðal annars var hulunni svipt af Ford Mustang Shelby GT500KR sem er kraftmesti Mustang frá upphafi. Aðeins verða framleidd eitt þúsund eintök af bílnum, sem hefst á næsta ári.
Ford Shelby GT500KR er með 5,4 lítra V-8 vél sem með sérstakri útfærslu skilar 540 hestöflum. Bíllinn verður að sjálfsögðu með hinu þekkta Mustang-merki á húddinu, krómlitum neðri stuðara með loftmóttöku, krómuðum bremsurörum og stórum 14 tommu Bremo frambremsum. Bíllinn ber svip af frægum kappakstursbílum og á að minna aðdáendur sína á líkindi Ford Mustang og Formúlu 1 kappakstursbíla.
p.s. þessi er rosalegur.