Virðist nú bara vera “helvítis dolla”
löggucamaro vs E30 (turbo reyndar) :)
http://youtube.com/watch?v=MHHA0Noz3Kktakiði eftir því hvernig lýsandinn hrósar kraftinum í cammanum geðveikt þó að E30 bíllinn sé keyrður af 15 ára unglingi og sé að rústa honum.
Svo kemur þarna viðtal við lögguna líka þar sem hún talar um að bíllinn sé með corvettuvél með tölvukubbi… wuhbidu, hefði camaroinn tætt E30 í sig hefði það kannski virkað sem hrós, en eftir þessa frammistöðu dregur það þetta bara niður.
Svo svona sem botninn í tunnuna þá er endinn á þessu myndbandi “falsaður”. Það var bara klippt á endann, bíllinn bilaði ekkert. Strákurinn komast heim og var reyndar gripinn þar.