Car fagnaði fertugsafmælinu sínu með nýju útliti, komplett breyting á öllu blaðinu.
Ég er að fíla þessa breytingu mjög vel og finnst meiraðsegja orðið aðeins áhugaverðara og skemmtilegra að lesa blaðið en áður. Það er læsilegra, og þeir leyfa sér mjög ævintýralega hluti án þess þó að sleppa basic layout reglum, það er ennþá allt assymetrical og flott hjá þeim.

Ég er alveg ótrúlega sáttur við Car núna. Það kemur aldrei í staðin fyrir evo, en þeir eru líka hættir að reyna það og eru byrjaðir að bjóða uppá allt öðruvísi hluti. Þeir hafa reyndar alltaf haft aðrar áherslur en evo, en þeir virðast bara hafa sætt sig við það loksins.