Þú eyðileggur spilarann ekkert á því að hækka of mikið en þú gætir eyðilagt hátalarana. Ég ætla ekkert að verða of tæknilegur en ef þú hækkar of mikið heyriru að hljóðið byrjar að bjagast og þá er tími á að lækka.
4 rása magnari er fyrir 4 hátalara. Þú getur líka fengið þér 4 rása magnara og notað 2 rásir fyrir 2 hátalara og síðan hinar tvær fyrir keilu. Verðið á mögnurum er mjög mismunandi eftir styrk og gæðum. Getur fengið góðann magnara fyrir 40 þúsund út úr búð en gætir sloppið með 20 þúsund fyrir sæmilegann.
Getur lesið ágætis grein um hljómtæki <a href="
http://www.bilavefur.com/hljomtaeki/grein.htm">hér</a>.