Spurning með skoðunarstöðina sem er í Klettagörðunum, við hliðina á ET. Man ekki alveg hvað hún heitir, Aðalskoðun eða Athugun eða eitthvað.
Ég fór með minn þangað, reyndar bara í söluskoðun, en hann er með filmur allan hringinn nema í framrúðunni. Kallinn var ekkert að fetta fingur út í það, spurði mig bara hvort ég vissi ekki að þetta væri óæskilegt. Hann sagði meira að segja að hann hefði heyrt að það væri verið að reyna að fá þetta lögleitt.