Ég veit til þess að þetta hafi verið gert við 5dyra civic hér á landi, fjólubláan að lit ef ég man rétt. Gaurinn sem á bílinn eyddi einhverri formúgu í þetta, hann býr úti á landi, Neskaupstað held ég. En gallinn er sá að vélin hjá honum var nýlega að gefa upp öndina … Að mínu mati þarftu að eyða allt allt allt of miklum pening til að fara að nálgast 3 hundraðið í hrossum með túrbínu breytingu á þessum bílum. Það þarf í rauninni að skipta út öllu ef á að gera þetta almennilega …